Um
helgina var Sindri færður úr uppsátri sínu og í hús Báta- og
hlunnindasýningarinnar á Reykhólum þar sem Hafliði Aðalsteinsson,
skipasmíðameistari og formaður sýningarinnar, mun vinna að viðgerð bátsins.
Hafliði
mun verða á svæðinu nú í júnímánuði á miðviku- og fimmtudögum á opnunartíma sýningarinnar
sem er kl. 11-18. Tilkynnt verður seinna um viðveru Hafliða í júlí og ágúst.
Upplagt
fyrir alla áhugasama um verndun bátaarfsins að bregða sér til Reykhóla og kynnast
vinnubrögðunum.
Viðgerðin er styrkt af Fornminjasjóði,
https://www.minjastofnun.is/sjodir/fornminjasjodur/styrkuthlutanir/2021/
Sjá myndir í myndaalbúmi : http://www.batasmidi.is/photoalbums/294794/
Skrifað af Sigurður Bergsveinsson