Hafliði Aðalsteinsson vinnur að smíði báts í Noregi hjá: http://kystensarv.no/islandsk-batbygger-i-aksjon. Verkefnið er að smíða dæmigerðann breiðfirskan bát. Hafliði mældi og teiknaði upp Sendling sem Ólafur Bergsveinsson langafi hans smíðaði fyrir um 130 árum. Verkið hófst 13. ágúst og nú þegar þetta er skrifað, 9. sept., er hann að setja áttunda umfarið af níu í bátinn og stefnir að því að klára hann um næstu mánaðarmót. Myndir eru í myndaalbúmi. Einnig má benda á Facebook síðu : https://www.facebook.com/kystensarv/