Bátasmíði.is

Færslur: 2011 Nóvember

20.11.2011 20:54

Stefnt að opnun nýrrar sýningar í vor.

1. January, 2011

 Vinna við undirbúning að opnun nýrrar sýningar í húsnæðinu okkar hér á Reykhólum er komin í fullan gang. Áhugamannafélag um bátasafn Breiðafjarðar og Reykhólahreppur ásamt fulltrúa frá Æðarvéum hafa nú sett saman þriggja manna nefnd til að vinna að þessum málum. Hlutverk nefndarinnar er að setja saman hugmyndir að nýrri sameinlegri sýningu í safnahúsinu sem tekur yfir hlunnindanitjar ásamt bátasmíðar á Breiðafirði svo eitthvað sé nefnt. Stefnt er að því að opna millivegg sem hefur skilið að sýningarnar hingað til og sett upp ein heildstæð sýning. Einnig er þessari nefnd ætlað að leggja fram tillögur að framtíðar stefnumótun um aðkomu Reykhólahrepps í safnamálum. Þeir sem sitja í nefndini eru Eiríkur Kristjánsson fyrir Reykhólahrepp Hjalti Hafþórsson fyrir áhugamannafélag um bátasafn Breiðafjarðar og Eiríkur Snæbjörnsson fyrir Æðarvé.

20.11.2011 20:51

Flugskýli verður bátasafn

17. December, 2010

  Áhugamannafélag um Bátasafn Breiðarfjarðar 
 hefur nýverið samið um kaup á gamla flugskýlinu 
 á Patreksfjarðarflugvelli. Um er að ræða skemmu 
 sem er ca 550 m2 með mænishæð 7.40m, og er 
 burðavirki úr timbri klætt með stáli. Til stendur að 
 taka skemmuna niður næsta vor og flytja hana til 
 Reykhóla þar sem hún verður reist aftur undir 
 starfsemi safnsins. Þetta viðbótarhúsnæði setur 
 okkur skrefi nær þeim markmiðum sem við 
 höfum sett okkur bæði í tengslum við 
 bátavernd og einnig  mun betri aðstöðu vegna bátadaga sem haldnir eru árlega.

Í haust og vetur hefur verið unnið við nýjan varnargarð við höfnina  hér á Reykhólum og er því verki nú ný lokið. Öll hafnaraðstaða gjörbreyttist til batnaðar og nú sjáum við nýja möguleika hjá okkur þar sem höfninn er orðin örugg fyrir veðri og vindum. Freistandi byggingarlóð fyrir nýju skemmuna okkar er á fyllingu sem gerð var innan við nýja
 
varnargarðinn og við höfum nú þegar fundað með oddvita og byggingarfulltrúa og 
 kynntum þeim okkar hugmyndir um starfsemi 
 í húsinu, með það markmið að fá að nýta  
 fyllinguna og var hugmyndum okkar mjög vel 
 tekið. Áætlað er að í öðrum enda hússins 
 verði smíðaverkstæði þar sem hægt verði að 
 taka inn stærri báta til viðgerðar. þó verður 
 særsti hluti hússins undir sýningarsvæði á 
 bátum sem bíða viðgerðar og þeim sem 
 þegar eru endursmíðaðir. Bátadagar sem eru orðnir árlegur viðburður og fjöldi fólks sækir, fá loks viðunandi aðstöðu og væntum við þess að þeir verði fluttir úr Staðarhöfn í nýju aðstöðuna við Reykhólahöfn það sem öll hafnaraðstaða er að verða til fyrirmyndar. Einnig eru uppi hugmyndir um að tengja starfsemina ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða upp að siglingar um náttúruparadísina Breiðarfjörð á gömlum endurgerðum bátum sem eiga sögu á svæðinu og gefa fólki kost á að kynnast aðeins þessum samgöngumáta sem var lífsnauðsynlegur fyrir ábúendur eyjanna.

20.11.2011 20:51

Styrkveitingar

17. December, 2010

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum síðustu daga hefur Félag áhugamanna um stofnun Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum nú fengið úthlutað styrkjum úr tveimur sjóðum.

Þjóðhátíðarsjóður úthlutaði okkur 500.000 kr til áframhaldandi uppbyggingar safnsins og um síðustu helgi úthlutaði Menningarráð Vestfjarða félaginu 750.000 kr styrk til áframhaldandi uppbyggingar safnasvæðis í samvinnu við Byggðasafnið á Hnjóti.

Til gamans má geta þess að Þjóðhátíðarsjóður hefur nú styrkt starfemi okkar tvö ár í röð en í fyrra fengum við 1.000.000 kr í styrk frá þeim.

Viljum við þakka Þjóðhátíðarsjóði og Menningarráði Vestfjarða kærlega fyrir stuðninginn og ekki síst þá hvatningu  sem þessi stuðningur veitir okkur.

20.11.2011 20:49

Björg leiðarvísir í bátasmíði.

13. October, 2010

    Út er kominn leiðarvísir á mynddiski frá endursmíðinni
 á feræringnum  Björgu, öðru nafni  Staðarskektunni .  Fylgst  
 er með smíðinni frá kili  að sjósetningu . Lag bátsins er 
 breiðfirskt og smíðin fór fram á  Reykhólum 2006 - 2007 hjá 
 Félagi áhugamanna um Bátasafn  Breiðafjarðar.  Smiðirnir
 eru Hafliði  Aðalsteinsson, Eggert  Björnsson, Hjalti 
 Hafþórsson og Aðalsteinn Valdimarsson..  Myndefnið  er 
 fjögurra klukkustunda langt á tveimur diskum,  en því er
 skipt í kafla eftir hlutum bátsins svo hægt að ,,fletta upp" á 
 auðveldan  hátt,  rétt eins og að spila allt saman.   Þá má 
 skipta yfir á aðra  hljóðrás með athugasemdum sem veita 
 aukreitis mikinn fróðleik. Hægt er  að panta leiðarvísinn í 
 gegnum vefsíðuna
www.gjola.is  verð 6.5oo kr.  Hvetjum alla 
 sem hafa hug á því að spreyta sig á bátasmíðum hvort sem 
 er  nýsmíði eða endurgerð á gömlum bát að ná sér í frábæran fróðleik er lítur að öllum helstu verkþáttum og aðferðum til bátasmíða.

20.11.2011 20:48

Stjórn minjasafnsins að Hnjóti óskar eftir viðræðum.

23. September, 2010

   Þann 17 sept. síðastliðinn barst Félagi áhugamanna um stofnun bátasafns Breiðafjarðar bréf frá stjórn minjasafsins að Hnjóti þar sem þeir óska eftir viðræðum vegna framtíðar varðveislu þeirra báta sem þar eru en þeir eru 11 talsins. Þetta er viðamikið verkefni sem unnið verður að nú á næstu vikum. Bátasafn Breiðafjarðar sem er staðsett á Reykhólum á nú þegar yfir 20 báta og ef fer sem horfir verður þetta kærkomin viðbót í safnið hjá okkur. Þess ber að geta að þeir aðilar sem standa að stofnun bátasafns Breiðafjarðar hafa nú þegar yfir að ráða 7 endurgerðum sjófærum bátum og sá 8 fer á flot á bátadögum næsta vor. Okkar markmið er að endurgera og sjósetja að nýju sem flesta báta í nýju hlutverki með það að  markmiði að auka trébátaeign almennings sem við teljum bestu leiðina í varðveislu báta.

20.11.2011 20:46

Fyrsta námskeiði í verklegri bátasmíði lokið.

21. September, 2010




Um síðustu helgi eða þann 18 sept lauk fyrsta námskeiðinu í bátasmíði hjá okkur. Við vitum ekki til þess að samskonar námskeið hafi verið haldið áður en það er greinilegt að það er mikil þörf fyrir námskeið af þessu tagi. Eftir því sem ég kemst næst útskrifaðist síðasti nemandinn í trébátasmíði úr iðnskóla 1987 en eftir það hefur ekki verið boðið uppá þetta nám í iðnskólum sem kannski skýrir að hluta hvernig komið er fyrir þessari verkmenningu. Námskeiðið gekk vonum framar og mikill áhugi á vinnunni við bátana sögu þeirra og væntanlegu framhaldi á bátamálum hjá okkur.  Vinnan við bátana var mikil og ætla ég að fara létt yfir það sem búið er að gera á námskeiðinu.

Baldur smíðaður í Hvallátrum 1938 smiður Valdimar Ólafsson.

Skipt um afturstefni og kjalsíður, komin 6 umför af 8 báðum megin, skipt út hluta af saxborðum aðeins farið í bönd.

Björk smíðuð í Hvallátrum 1936 smiður Valdimar Ólafsson

Skipt um efrihluta afturstefnis, skipt út 3 umförum að aftan, 2 umförum framan, talsvert endurnýjað af böndum, nýjar kempur og smíðaðir nýjir borðstokkar. Lítilega var farið yfir seglbúnað sem algengastur var á Breiðafirði á tíma árabátanna.

Þeir sem tóku þátt í námskeiðinu hjá okkur eru: Bjarni Sigurjónsson Reykjavík, Birkir Birgisson Hornafirði ,Hans Wíum Bragason Garði, Hilmir Bjarnasson Akranesi, Loftur Sigvaldasson Garði og Karl Gunnarsson Reykjavík. Viljum við þakka þeim fyrir frábæra samveru og við vonumst til þess að þetta verði byrjun á frekari samvinnu í frammtíðinni. Fleiri myndir eru komnar í albúmið okkar og jafnframt þær síðustu frá námskeiðinu.

20.11.2011 20:45

Óvænt heimsóka á námskeiðið.

17. September, 2010

      Við fengum skemmtilega heimsókn til okkar á námskeiðið í byrjun vikunnar. Þeir gestir sem komu voru starfsmenn frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða þau Smári Haraldsson forstöðumaður, María Ragnarsdóttir og Kristín Sigurrós Einarsdóttir, frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða Finnbogi Sveinbjörnsson formaður og síðan Harpa Lind Kristjánsdóttir frá Starfsendurhæfingu Vestfjarða. Þau skoðuðu vel bátana sem eru í viðgerð á námskeiðinu og var síðan spjallað bæði við leiðbeinendur og þátttakendur, um kvöldið var okkur boðið í kjötsúpu í matsal Reykhólaskóla. Námskeið hefur gengið vel og  þátttakendur ánægðir.  Búið er að bæta við myndum frá námskeiðinu í albúmið.

20.11.2011 20:44

Enn fjölgar þátttakendum.

13. September, 2010

  Nú er fyrri vikunni af námskeiðinu lokið og öll vinna gengið mjög vel. Þátttakendum fjölgar enn svo það er skemmtileg vika framundan. Viðgerðir á bátunum eru enn á áætlun sem verður að teljast gott. Búið er að setja myndir í albúmið af undirbúningi fyrir námskeið og myndir af fyrri námskeiðsvikunni.

20.11.2011 20:42

Námskeið fer vel af stað.

9. September,




Endursmíðin á bátunum hefur gengið vonum framar,  þátttakendur á námskeiðinu hafa sýnt þessu mikinn áhuga og eru fljótir að tileinka sér þau vinnubrögð sem fylgja endursmíðum á þessum gömlu bátum.  Frá því á mánudag er komið nýtt afturstefni í Baldur ásamt kjalsíðum og þriðja umfar að detta í. Björkin er líka kominn með nýjan efrihluta afturstefnis og byrjað að byrða hana upp að nýju. Myndaalbúm af námskeiðinu verður sett hérna á síðuna hjá okkur á helginni.

20.11.2011 20:24

Viðhald og endursmíði gamalla trébáta.

 Verklegt námskeið.

16. August, 2010

  Námskeið um viðhald og endursmíði gamalla trébáta verður haldið á Reykhólum dagana 6 til 18 sept næstkomandi. Á námskeiðinu verður farið í viðgerð á 6,5m súðbyrtum vélbát. Áætlað er að námskeiðinu verði skipt upp í fjóra hluta á námskeiðstímanum og verður þannig.

6 til 8 sept.  Skipt um afturstefni.
9 til 11 sept.  Skipt um í byrðing.
12 til 14 sept.  Höggvin bönd.
15 til 18 sept.  Skipt um borðstokka.
Einnig verður fjallað um segl og reiðabúnað með gamla laginu.

Með því að skipta námskeiðinu upp í þessa fjóra hluta viljum við gefa þáttakendum kost á að velja sér þá verkhluta sem að þeir telja að nýtist sér best. Þátttakendur geta því valið einn verklið, komið síðan aftur í annan verklið ef þeir vilja. Aðeins verður greitt fyrir viðveru og getur þátttakandi því stýrt því hver kostnaðurinn verður.

Hver klukkustund kostar 1000 kr en þó að hámarki 8000 kr dagurinn.

Áhugasamir sem vilja smíða með okkur allan námskeiðstímann greiða fast verð. 60.000 kr.

Þátttakendur sjá sér fyrir fæði og gistingu á námskeiðstímanum.

Möguleikar á gistingu eru t.d tjaldstæði fyrir fellihýsi og hjólhýsi, gistiheimilið Álftaland, Bjarkarlundur og einnig er bændagisting á svæðinu.

Skráning á  [email protected] Vinsamlegast skráið nafn, heimilisfang og síma og þann hluta námskeiðsins sem þið kjósið að nýta ykkur.

20.11.2011 20:11

Bátadagar 2.-4. júlí 2010

8. Juní, 2010

 Þá er aftur komið að bátadögum.  Áætlað er að fara frá Stað kl. 9 .00 á laugardagsmorgun þann 3. júlí.  Æskilegt er að formenn báta komi með báta sýna föstudaginn 2. júlí.   Siglt verður út í Sviðnur stoppað þar í einn til tvo tíma þaðan er siglt með fram Skáleyjalöndum og Látralöndum norður úr Breiðasundi milli Sprókseyja og Véleyjar sunnan við Svefneyjaklofning og til Flateyjar .

Bátarnir safnast saman við Hrólfsklett og fara þaðan í röð út Hafnarsund út að eyjarenda í Flatey og til baka inn Hafnarsund til að fólk í Flatey geti fylgst með, vonandi verður góður tími í Flatey til að skoða eyna eða leika sér á bátunum.

Farið verður frá Flatey kl. 11 á sunnudagsmorgun til Hergilseyjar og þaðan sem leið liggur meðfram Hvallátrum og Skáleyjum að Stað.

Bátseigendur eða áhöfn þarf að sjá um að björgunarvesti og annan öryggisbúnaður sé í bátnum, koma með nesti fyrir helgina og annað sem hún telur sig þurfa ásamt tjaldi því gist verður á tjaldsvæði í Flatey

Í nokkrum bátum verða menn sem rata þá leið sem við förum , mikilvægt er að formenn sem lítið rata fylgi hinum og fari í kjölfarið, ekki til hliðar við þá því hluti af leiðinni er um þröng sund, kannski tvær til þrjár bátsbreiddir.

Kortinn hér fyrir neðan eru af siglingarleiðum  helgarinnar, rauða línan er sigling laugardagsins, en græna línan er sigling sunnudags. Við völdum að setja siglingarleiðina á þrjú kort  til að sína leiðirnar betur.

Kort 1

Kort 2

Kort 3

Vegna öryggismála er nauðsynlegt að þátttakendur skrái sig í ferðina.  Skráning fer fram á á netpósti [email protected] 

Koma þarf fram nafn báts, nafn formanns og fjöldi farþega í bát.  Vinsamlegast skráið ykkur tímanlega.  Hlökkum til að sjá ykkur.

18.11.2011 14:10

Skinnklæðin vekja athygli.

4. September, 2009

Áhugamannahópur sem stendur að stofnun bátasafns Breiðarfjarðar hefur ekki eingöngu með handverk bátasmíða fyrri tíma að gera heldur lagt sig við að læra seglagerð, eldsmíði og sjóklæðagerð.  Mikil vinna hefur verið lögð í að afla heimilda um það handbragð sem tilheyrði gerð þessarra hluta.



  Þau hafa vakið mikla athygli skinnklæðin góðu sem Eggert Björnsson
 félagi okkar frá Patreksfirði saumaði.  Um er að ræða eftirlíkingu af  
 fyrstu gerð skinnklæða sem notuð voru sem sjófatnaður.  Skinnklæðin
 hafa alltaf átt hug Eggerts frá því að hann var ungur og teiknaði hann
 þau gjarnan.  Það tók hann um 3 ár af heimildavinnu áður en
 saumaskapurinn gat hafist og fóru 12 lambsskinn í klæðin.

Skinnklæðin hafa verið fengin að láni á nokkrar sýningar í sumar þ.m.t. á sýningu hjá Alliance Française í Reykjavík um síðustu mánaðarmót.  Hún er um veru franskra sjómanna við Íslandsstrendur á skútuöldinni og sýn Íslendinga á þessum framandi mönnum.  Myndirnar með fréttinni eru teknar þaðan.  Um 70 gestir mættu á opnun sýningunar þar á meðal Vigdís Finnbogadóttir og þóttu skinnklæðin afar áhugaverð.  Það var María Óskarsdóttir Patreksfirði sem fékk klæðin lánuð á sýninguna og að hennar sögn sló þögn á hópinn þegar Páll Óskarsson gekk inn í salinn í klæðunum,  fólkið vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, svo mikil var undrun þess. Það vissi ekki hvernig það átti að bregðast við. Allt í einu var kominn þarna sjómaður frá liðinni öld, á meðal þeirra; í sjóskóm og með tvíþumla ullarvettlinga á höndunum. Sjóhatturinn á sínum stað
 


og í hendinni bar hann gamlan fiskigogg. Þegar hópurinn fór aðeins að jafna sig vildu margir, sérstaklega þó konurnar, fá að koma við búninginn. Voru þau skoðuð í bak og fyrir af virtum gestum sem höfðu sumir talsvert vit á saumaskap.  Þar á meðal var Adda Geirsdóttir fyrrverandi skólastjórafrú Héraðsskólans á Laugarvatni. Hún er lærð húsmæðra- og handavinnukennari og hefur þaulæft auga fyrir vönduðu handbragði. Hún fékk að skoða búninginn nákvæmlega, ekki aðeins á réttunni, heldur rönguna líka. Því eins og þeir vita sem vandvirkir eru og kunnugir saumaskap, þá er ekki nóg að allt sýnist slétt og fellt að utan. Bakhliðin eða rangan þarf að standast prófið líka!  Hún dáðist mjög af handverkinu og því hversu vel búningurinn var unninn.

Fleiri aðilar hafa sýnt klæðunum áhuga og má nefna Ósvör sjóminjasafnið í Bolungarvík, líklega með það í huga að sauma einn slíkann.  Þeir höfðu samband við Eggert á dögunum og fengu helstu upplýsingar um sjóklæðagerðina.  Við óskum þeim góðs gengis með saumaskapinn.



Hjalti

18.11.2011 14:08

Heimsókn til Siglufjarðar.

4. August, 2009

Eyfirskur bátur í smíðum Á dögunum heimsóttum við félagarnir Hafliði, Eggert og Hjalti Síldarminjasafnið á Siglufirði þar sem síðari hluti samstarfsverkefnis Síldaminjasafnsins og Bátaverndarmiðstöðvar norður Noregs í Gradanger fer fram.  Verkefnið byrjaði þann 6. júlí s.l. þegar Björn Lillevoll og Skúli Thoroddsen hófu smíði á bát með eyfirsku bátalagi og fer smíðin fram í gamla slippnum á Siglufirði.  Það er ekki á hverjum degi sem það gefst tækifæri á því að vera viðstaddur smíðar af þessu tagi og því gerðum við okkur ferð norður og fengum að höggva niður í nokkur bönd í bátinn.  Þess má geta að Björn Lillevoll tók þátt í bátadögum með okkur og hafði gaman af, hann nýtti tækifærið til að skoða breiðfirsku bátana vel og leist mjög vel á.

Fyrri hlut þessa verkefnis fór fram í Gradanger síðast liðið haust en þá fóru fulltrúar frá Síldaminjasafninu í heimsókn í Bátaverndarmistöð norður Noregs til að kynnast og taka þátt í smíði á norskum feræringi undir leiðsögn Björn Lillevoll.  Undirrituðum var boðið að vera með í för til að kynnast starfsemi bátavendarmiðstöðvarinnar.

Hér fyrir neðan er smá fróðleiksmoli um eyfirskt bátalag, og sést þar hversu vel er við hæfi að smíðin á Siglufirði sé samstarfsverkefni á milli Íslendinga og Norðmanna.

 Í frásögn Bjarna Sæmundssonar fiskifræðings í Andvara árið 1900 getur hann þess að bátar með Eyjarfjarðarlagi sé nokkurs konar samruni að eyfirsku og norsku handbragði.
Orðrétt segir Bjarni "Bátar hér eru all flestir með Eyjarfjarðarlaginu sem er sameining af lagi hinna gömlu Eyjarfjarðarbáta og norsku sjægte lagi, þeir eru góðir í sjó að leggja og vel lagaðir bæði til róðurs og siglinga. Þeir eru að smíði og frágangi vandaðri og smekklegri en aðrir íslenskir bátar er ég hef séð".
Algengast var að á Eyjarfjarðarbátum væri fokka og ýmist spritsegl eða gaffalsegl. Helsta einkenni eyfirsku bátanna er að böndin koma upp með þóftum framan til en ekki undir þær miðjar eins og algengast var á öðrum bátategundum hér við land.

Kveðja Hjalti Hafþórsson

18.11.2011 14:07

Bátadagar 2009 ákaflega vel heppnaðir.

14. July, 2009



Um síðust helgi fóru fram Bátadagar 2009 á Reykhólum.  Það er áhugamannahópur um stofnun Bátasafns Breiðarfjarðar sem stendur að Bátadögum og var fjölmenn þátttaka í ár.  Hópur yfir 100 manns hélt úr höfn frá Stað á um 20 trébátum.  Siglt var í blíðskapar veðri um Breiðafjörðinn eins og dagskrá sagði til um.   Hópurinn fékk frábærar móttökur í eyjunum og slegin var upp matarveisla í Skáleyjum að hætti þeirra og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.  Áhugamannahópurinn vill þakka öllum þátttakendum fyrir frábær viðkynni, yndislega siglingu og vonast til að sjá sem flesta aftur að ári.

Á myndasíðu eru myndir úr ferðinni.

Með bestu kveðju,

Hjalti Hafþórsson Hvalfjarðarsveit.

18.11.2011 14:03

Bátadagar 2009

6. March, 2009

Reykhólamenn eru búnir að ákveða tímasetningu Bátadaganna á nýja árinu. Að þessu sinni verða þeir helgina 11. og 12. júlí. Farið verður á ennþá óvissum fjölda súðbyrðinga frá höfninni á Stað á Reykjanesi á laugardagsmorgni og komið við í eyjum á leiðinni til Flateyjar, þar sem gist verður um nóttina. Að Bátadögum stendur sami hópurinn sem undanfarin ár hefur unnið að uppbyggingu Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum. Vonast er til þess að sem flestir sem hafa yfir súðbyrtum sjófærum trébátum að ráða, gömlum sem nýjum, komi og verði með í ferðinni.

 

         Bátadagar   ferðaáætlun 11. og 12. júlí 2009

Farið verður frá Stað kl. 10 að morgni 11. júlí. Siglt verður út flóann meðfram Skákaskeri og Leiðarskeri í lendingu í Skáleyjum. Þaðan verður farið út Langeyjarsund, Brandssund meðfram Látratöngum og Lyklaskeri út á Bæjarsund í lendingu í Hvallátrum. Farið verður þaðan út Bæjarsund, Lokaskerssund eða Leiðarsund meðfram Sprókseyjum og Klofningi í lendingu í Svefneyjum, þaðan verður farið út Flateyjarsund og Hafnarsund til Flateyjar.  Þeir sem geta látið báta sína fjara þurfa að vera komnir í Grýluvog milli kl. 9 og 10 um kvöldið, þar verða bátarnir geymdir um nóttina.

sunnudagur 12. júlí

Kl. 10 (um flæðina) á sunnudagsmorgun þarf að taka bátana úr Grýluvogi. Farið verðir af stað úr Flatey kl. 13 sem leið liggur  um Eyjarendasund suður fyrir Svefneyjar í Sviðnur og farið þaðan um Sviðnasund meðfram Skutlaskerjum að Stað.

Stoppað verður á hverjum stað  í einn eða tvo klukkutíma, nema í Flatey þar sem gist verður. Rétt er að taka fram að sjávarföll ráða meira um ferðatilhögun en klukkan.

Bátasafn Breiðafjarðar

Nafn:

Bátasafn Breiðafjarðar

Staðsetning:

Reykhólar

Tenglar

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 464
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 766164
Samtals gestir: 72951
Tölur uppfærðar: 20.9.2024 01:05:52

Gestir

free counters