Laugardaginn 2 júlí voru Bátadagar haldnir. Bátar sem þátt tóku voru einungis fjórir og hafa aldrei verið færri. Þátttakendur voru um 35. Farið var i Akureyjar þar sem þau, Lilja og Birgir bændur tóku á móti hópnum. Veður var frekar þunmgbúið og gekk á með skúrum. Siglt var um Reykhólaeyjar á bakaleiðinni. Allt gekk eins og í sögu. Um kvöldið var haldin kvöldvaka og grillað saman í Báta- og hlunnindsýningunni. Vélasafn sem Þórhallur Matthíasson færði safninu að gjöf í fyrra var opnað formlega í kjallara hússins. Félagsmenn hafa í vetur unnið að frágangi kjallarans og er nú komin fyrirtaks aðstaða til að sýna safnið.
Myndir eru komnar inn á myndaalbúm endilega skoðið: http://batasmidi.is/photoalbums/279727/