Færslur: 2020 Júní
29.06.2020 20:51
Bátadagar 2020
Bátadagar á Breiðafirði 4 júlí 2020
Allar
gerðir báta velkomnar
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum,
í samvinnu við Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum, gengst nú fyrir
bátahátíð á Breiðafirði í þrettánda sinn 4 júlí nk.
Allar gerðir báta velkomnar, ekki bara trébátar.
Föstudagur 3. júlí. Safnast saman.
Ráðgert er að þáttakendur safnast saman á Reykhólum
föstudaginn 3 júlí. Flóð er um kl. 18 og þá er gott að setja bátana niður í
höfninni fyrir þá sem koma með bátana landleiðina.
Laugardagur 4. júlí.
Á laugardagsmorgun verður haldið frá Reykhólum um kl. 9-10
og áformað er að sigla um s.k. Reykhólaeyjar sem eru innan við Reykhóla fyrir
minni Beru- og Króksfjarðar. Ráðgert er að koma til baka seinni partinn. Háflóð
er um kl. 19 og þá er hentugt að taka bátana upp.
Svæðið sem
siglt verður um.
Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður,
mestu um hvernig siglingin verður og áætlunin getur því breyst ef aðstæður
krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við
Breiðafjörð.
Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að
nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Vinsamleg tilmæli eru að
þáttakendur verði með bjargbelti og að sem flestir bátar séu búnir
björgunarbátum.
Allir bátar eru velkomnir og við viljum
hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega
umhverfi.
Mjög góð aðstaða fyrir báta er á Reykhólum og einnig
er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Sjá nánar hér: http://www.reykholar.is/
Báta- og hlunnindasýningin verður opin og vafalaust
hafa þáttakendur áhuga á að skoða hana. Sjá má fróðleik úr starfi félagsins og
myndir frá fyrri bátadögum hér: http://batasmidi.is/
Frekari upplýsingar veitir: Hafliði Aðalsteinsson,
formaður félagsins, s. 898-3839
Myndir og myndbönd úr ferðinni má sjá hér:
http://www.batasmidi.is/photoalbums/293710/
http://batasmidi.is/photoalbums/293755/
https://www.facebook.com/goddur55/media_set?set=a.10158682576771907&type=3
- 1