Bátasmíði.is |
|||||||
Færslur: 2022 Júní22.06.2022 00:59Bátadagar 2022Bátadagar á Breiðafirði 9 júlí 2022 Allar gerðir báta velkomnar
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í fimmtánda sinn 9 júlí nk. Núna verður farið til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar hefur teinæringurinn Egill verið geymdur allt frá árinu 1940 er hætt var að nota hann og honum lagt. Fróðleik um Egil og fleiri báta er að finna í munaskrá félagsins sem geymd er hér: http://batasmidi.is/files/
Föstudagur 8. júlí. Safnast saman. Ráðgert er að þáttakendur safnast saman á Reykhólum föstudaginn 8 júlí. Flóð er um kl. 14 og þá er gott að setja bátana niður í höfninni fyrir þá sem koma með bátana landleiðina. Einnig er hægt að sjósetja báta í höfninni við Stað á Reykjanesi.
Laugardagur 9. júlí. Á laugardagsmorgun verður haldið frá Reykhólum um kl. 9 og áformað er að sigla um s.k. Staðareyjar. Við Stað koma þeir, sem þaðan fara, til móts við þáttakendur (um kl. 10) og síðan er siglt áleiðis um Skáleyjalönd og til Hvalláturs. Staðarhaldarar í Hvallátrum munu kynna þáttakendum það starf sem þar fer fram en þar er stunduð æðarrækt og dúntekja. Einnig mun Egill verða skoðaður og saga hans sögð. Ráðgert er síðan að koma til baka seinni partinn.
Svæðið sem siglt verður um.
Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður, mestu um hvernig siglingin verður og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð.
Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Vinsamleg tilmæli eru að þáttakendur verði með bjargbelti og að sem flestir bátar séu búnir björgunarbátum.
Allir bátar eru velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.
Mjög góð aðstaða fyrir báta er á Reykhólum og einnig er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Sjá nánar hér: http://www.reykholar.is/. Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum er opin 11-18 alla daga nema sunnudaga. Finna má fróðleik úr starfi félagsins og myndir frá fyrri bátadögum hér: http://batasmidi.is/
Frekari upplýsingar veita: Hafliði Aðalsteinsson s. 898-3839 og Sigurður Bergsveinsson s. 893-9787 Skrifað af Sigurður Bergsveinsson
|
Eldra efni
Bátasafn Breiðafjarðar Nafn: Bátasafn BreiðafjarðarTölvupóstfang: [email protected]Staðsetning: ReykhólarTenglar
Flettingar í dag: 92 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 464 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 766242 Samtals gestir: 72954 Tölur uppfærðar: 20.9.2024 02:34:46 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is