Bátasmíði.is

Færslur: 2019 Mars

01.03.2019 20:16

Björg



Björg var smíðuð í Bjarneyjum um 1870 af Bergsveini Ólafssyni (1839-1999). Bergsveinn, var sonur Ólafs Teitssonar (1810-1892) og Bjargar Eyjólfsdóttur (1815-1899) í Sviðnum, Einarssonar eyjajarls (1784-1865) í Svefneyjum. Bergsveinn var afkastamikill bátasmiður og er talinn hafa smíðað bát á ári öll sín búskaparár í Bjarneyjum 1869-1899 og stundum marga, eða alls á milli 30 og 40 báta, auk þess sem hann gerði við fjölda báta.

Björg er smíðuð úr furu fyrir Magnús Magnússon (1854-1933) "vert" í Flatey og er stór sexæringur tæpir 8 metrar á lengd og um 2,2 metrar á breidd og um 2,0 brl. að stærð. Upphaflega hét báturinn Harpa og var seglskip og notaði Magnús bátinn aðallega til flutninga. Árið 1934 eignast Valdimar Ólafsson (1906-1939) sonarsonur Bergsveins bátinn, breytir honum í vélbát og lætur hann heita Björg. Síðan var báturinn í Hvallátrum og notaður til flutninga og ferðalaga þar til búsetu þar lauk árið 1991. Báturinn var í Hvallátrum í eigu Aðalsteins Aðalsteinssonar (1923-2014) bróðursonar Valdimars til ársins 2007, en þá var báturinn tekinn til viðgerða og synir Aðalsteins, Hafliði og Jón, gerðu töluvert við hann. Í dag er hann heill og í ágætu standi.

Fyrsta vélin sem sett var í bátinn var 7 ha Skandia vél en 1948 var sett í hann 10 ha Skandia, 1961 10 ha Kelvin vél og 18 ha Sabb vél árið 1987. Kelvin vélin frá 1961 var síðan gerð upp og sett aftur í bátinn 1997-98.

Björg was built in Bjarney in 1870 by Bergsveinn Ólafsson (1839-1999). Bergsveinn, son of Ólafur Teitsson (1810-1892) and Björg Eyjólfsdóttir (1815-1899) in Sviðnur, Einarsson (1784-1865) in Svefneyjar island. Bergsveinn was a productive boat builder and built a boat every year from 1869-1899 and sometimes many, or in total between 30 and 40 boats. Björg is made of pine for and is about 2.0 brl. (gross tonnes) Initially, the boat was named Harpa and was a sailing ship. In 1934, Valdimar Ólafsson (1906-1939) grandson of the Bergsveinn, bought the  boat, converted him into a motor boat and named him Björg. Then the boat was in Hvallátur and used for transport and travel until the residence in Hvallátur ended in 1991. The boat was owned by Aðalsteinn Aðalsteinsson (1923-2014) brotherson of Valdimar until 2007, when then the boat was taken for repair and sons of Aðalsteinn, Hafliði and Jon, did a lot to him. Today she is in good condition. The first machine that was installed in the boat was 7 ha Skandia engine, in 1948 it was replaced with 10 ha Skandia engine. In 1961 it was replaced with 10 ha Kelvin engine and then 18 ha Sabb machine in 1987. The Kelvin machine from 1961 was then repaired and re-installed in the boat 1997- 98.



  • 1

Bátasafn Breiðafjarðar

Nafn:

Bátasafn Breiðafjarðar

Staðsetning:

Reykhólar

Tenglar

Flettingar í dag: 199
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 578
Gestir í gær: 60
Samtals flettingar: 943353
Samtals gestir: 85242
Tölur uppfærðar: 17.2.2025 02:14:53

Gestir

free counters