Bátasmíði.is |
|
13.10.2021 12:40Viðurkenningar fyrir störf á sviði sjó- og strandminja Í
dag, 11. október 2021, veitir Samband íslenskra sjóminjasafna þremur valinkunnum
mönnum viðurkenningu fyrir farsæl störf á sviði sjó- og strandminja um áratuga
skeið. Þessir menn hafa starfað hver á sínu sviði en allir skilað sérlega
drjúgu og merku lífsverki. Þetta eru Geir Hóm, Hafliði Aðalsteinsson og Þór
Magnússon. Geir Hólm varð
safnstjóri Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði árið 1982 og starfaði við
safnið til 75 ára aldurs, til ársins 2008 eða í 26 ár. Hann var meðal annars
ötull við söfnun sjóminja á þeim tíma og gerði safnið að einu af merkustu
sjóminjasöfnum landsins. Einnig lagði hann mikið af mörkum til varðveislu
gamalla báta og ýmissa sögulegra mannvirkja á Austurlandi, meðal annars vitans
á Dalatanga og tveggja af elstu húsum Eskifjarðar, Jensenshúss og
Randulfssjóhúss. Hafliði Aðalsteinsson
hefur verið starfandi tréskipasmiður alla tíð, lærði fyrst hjá föður sínum og nam
síðar við Iðnskólann í Reykjavík. Hann hefur smíðað nokkurn fjölda báta og
einnig og ekki síst unnið að viðgerð og endurgerð eldri báta. Hafliði var stofnfélagi og í forystu fyrir Félag áhugamanna um
Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum sem sett var á stofn árið 2006. Félagið
byggir á gjöf föður Hafliða, sem gaf þrjá báta og öll sín tæki til safnsins. Þá
hefur Hafliði verið óþreytandi við að efla þekkingu á skipasmíðum og haldið
fjölda námskeiða í skipasmíði í samastarfi við IÐUNA fræðslusetur, m.a. í
Reykjavík og á Reykhólum. Þór Magnússon var
þjóðminjavörður á árunum 1968-2000. Eitt af þeim sviðum sem hann lét sig miklu
varða var sjóminjar og bátavarðveisla. Var hann þar á margan hátt brautryðjandi
því að Þjóðminjasafnið og byggðasöfnin höfðu sýnt meiri áhuga á sveitamenningu
fyrri tíðar en minjum um sjósókn og siglingar. Í tíð Þórs hófst til að mynda
markviss söfnun á gömlum bátum en þá voru söfnin á Íslandi ekki farin að sinna
því svo heitið gæti. Þá má nefna hlut Þórs í að koma upp Sjóminjasafni Íslands
í Hafnarfirði. Safnið markaði spor á sínum tíma þótt það starfaði í aðeins 15
ár. Helgi
Máni Sigurðsson formaður SÍS Fv. Helgi Máni Sigurðsson, Hafliði Már Aðalsteinsson, Geir Þórðarson og Þór Magnússon Skrifað af Sigurður Bergsveinsson |
Eldra efni
Bátasafn Breiðafjarðar Nafn: Bátasafn BreiðafjarðarTölvupóstfang: [email protected]Staðsetning: ReykhólarTenglar
Flettingar í dag: 71 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 464 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 766221 Samtals gestir: 72953 Tölur uppfærðar: 20.9.2024 02:12:17 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is