Bátasmíði.is

31.01.2020 18:58

Kristján kominn heim.

Kristján SH. Skipaskrárnúmer 647. Báturinn var smíðaður árið 1961 í Skipasmíðastöðinn hf. í Stykkishólmi og yfirsmiður var Kristján Guðmundsson (Stjáni Slipp) framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvarinnar. Þorsteinn Þorsteinsson skipasmíðameistari á Akureyri teiknaði bátinn. Báturinn er plankabyggður eikarbátur og þegar mælibréfið er gefið út í október 1961 er báturinn skráður  13,30 m. á lengd, 4,0 m. á breidd og 1,8 m. á dýpt og  20,90 brl. og vél Caterpillar 180 ha.

Báturinn er afar vandaður vel viðaður og vel byggður og ber meisturum sínu fagurt vitni. Báturinn er heill og búið er að skoða hann og meta vel hæfan til viðgerðar.

Báturinn var smíðaður fyrir Gísla Kristjánsson og fleiri í Grundarfirði. Í febrúar árið 1965 kaupir Norðri hf í Flatey bátinn og er hann notaður sem flóa- og fiskibátur og fær nafnið Konráð BA 152 árið 1968. Árið 1972 er báturinn seldur til Skagastrandar og þá er sett á hann það hús sem enn er á honum. Þá fær hann nafnið Helga Björg HU 7. Báturinn var gerður út sem fiskibátur frá Skagaströnd. Árið 1995 er báturinn seldur til Hafnarfjarðar og hlaut nafnið Reginn HF. Hann var síðan gerður út lengi frá Þorlákshöfn. Árið 2005 var hann skráður í Grundarfirði sem Sindri SH 121. Árið 2006 var hann skráður sem Gæskur KÓ. Síðan hefur báturinn ekki verið notaður og síðustu árin hefur hann staðið á landi og beðið örlaga sinna.

Nú á haustdögum 2019 leysti Kópavogsbær bátinn til sín og áformaði að farga honum. Sigurjón Jónsson, stjórnarformaður Skipavíkur í Stykkishólmi, hefur nú ákveðið að koma að verndun bátsins og í framhaldinu afsalaði Kópavogsbær bátnum til Bátasafns Breiðafjarðar. Fyrsta skrefið á þeirri braut verndunar er að báturinn var fluttur í lok janúar 2020 til Stykkishólms þar sem honum verður komið í geymslu og reynt að koma í veg fyrir frekari skemmdir á honum.

Vonir standa til að báturin verði seinna endurbyggður í upprunalegri mynd og honum fundið hlutverk til framtíðar.

Ýmsar myndir og gögn má finna hér:  http://batasmidi.is/photoalbums/292925/

Bátasafn Breiðafjarðar

Nafn:

Bátasafn Breiðafjarðar

Staðsetning:

Reykhólar

Tenglar

Flettingar í dag: 792
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 972
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 984183
Samtals gestir: 87838
Tölur uppfærðar: 24.3.2025 17:31:53

Gestir

free counters