Baldur kominn á stokkana fyrir námskeið.
5. September, 2010
Undirbúningur fyrir námskeiðið hófst í byrjun síðustu viku þegar við félagarnir hittumst á Reykhólum. Við byrjuðum á því að setja Baldur á stokkana og stífa hann af til viðgerðar Búið er að rífa burtu kjalsíður og fjögur næstu umför þar fyrir ofan og afturstefnið er líka komið úr.
Baldur var smíðaður í Hvallátrum árið 1936 af Valdimari Ólafssyni fyrir Þórð Benjamínsson í Hergilsey.Upphaflega ar sett í bátinn 2 cyl. Albin vél en í dag er í honum 1 cyl Sabb.
Björk frá Litlu -Hlíð á Barðaströnd.
Á námskeiðinu munum við líka huga að viðgerðum á Björk en á henni þarf að skipta út
efrihluta afturstefnis efsta umfari, borðstokka, saxborð, kempu, hástokkum .
Björk var smíðuð í Hallátrum 1936 af Valdimari Ólafssyni fyrir Gunnar Þorsteinsson frá Litlu – Hlíð á Barðaströnd. Upphaflega var sett í bátinn 1 cyl Sleipner og er hann enn í bátnum í fínu lagi.
Námskeiðið að hefjast.
30. August, 2010
Nú styttist í áður auglýst námskeið og hver að verða síðastur með að láta skrá sig. Námskeiðið hefst mánudaginn 6 sept. klukkan 9:00 í safnahúsinu á Reykhólum og líkur þann 18 sept. Nýjir áhugasamir lesendur eru beðnir um að kynna sér fréttina af námskeiðinu hér að neðan.
Vel heppnaðir Reykhóladagar.
30. August, 2010
Síðast liðna helgi tókum við þátt í Reykhóladögum, við mættum með nokkra af bátunum okkar og stilltum þeim upp utan við safnið hjá okkur. Innandyra voru einnig nokkrir bátar og tillögur af uppsetningu á safninu sem hafa verið gerðar fyrir okkur og vonandi verður sett upp í vetur. Á meðan að gestir virtu fyrir sér safnið og sögu bátanna var boðið uppá kaffi og kleinur. Við viljum þakka öllum gestum fyrir komuna og góð kynni.
VIÐHALD OG ENDUSMÍÐI GAMALLA TRÉBÁTA. Verklegt námskeið.
16. August, 2010
Námskeið um viðhald og endursmíði gamalla trébáta verður haldið á Reykhólum dagana 6 til 18 sept næstkomandi. Á námskeiðinu verður farið í viðgerð á 6,5m súðbyrtum vélbát. Áætlað er að námskeiðinu verði skipt upp í fjóra hluta á námskeiðstímanum og verður þannig.
6 til 8 sept. Skipt um afturstefni.
9 til 11 sept. Skipt um í byrðing.
12 til 14 sept. Höggvin bönd.
15 til 18 sept. Skipt um borðstokka.
Einnig verður fjallað um segl og reiðabúnað með gamla laginu.
Með því að skipta námskeiðinu upp í þessa fjóra hluta viljum við gefa þáttakendum kost á að velja sér þá verkhluta sem að þeir telja að nýtist sér best. Þátttakendur geta því valið einn verklið, komið síðan aftur í annan verklið ef þeir vilja. Aðeins verður greitt fyrir viðveru og getur þátttakandi því stýrt því hver kostnaðurinn verður.
Hver klukkustund kostar 1000 kr en þó að hámarki 8000 kr dagurinn.
Áhugasamir sem vilja smíða með okkur allan námskeiðstímann greiða fast verð. 60.000 kr.
Þátttakendur sjá sér fyrir fæði og gistingu á námskeiðstímanum.
Möguleikar á gistingu eru t.d tjaldstæði fyrir fellihýsi og hjólhýsi, gistiheimilið Álftaland, Bjarkarlundur og einnig er bændagisting á svæðinu.
Skráning á artser@simnet.is Vinsamlegast skráið nafn, heimilisfang og síma og þann hluta námskeiðsins sem þið kjósið að nýta ykkur.
Bátadagar 2.-4. júlí 2010
8. June, 2010
Þá er aftur komið að bátadögum. Áætlað er að fara frá Stað kl. 9 .00 á laugardagsmorgun þann 3. júlí. Æskilegt er að formenn báta komi með báta sýna föstudaginn 2. júlí. Siglt verður út í Sviðnur stoppað þar í einn til tvo tíma þaðan er siglt með fram Skáleyjalöndum og Látralöndum norður úr Breiðasundi milli Sprókseyja og Véleyjar sunnan við Svefneyjaklofning og til Flateyjar .
Bátarnir safnast saman við Hrólfsklett og fara þaðan í röð út Hafnarsund út að eyjarenda í Flatey og til baka inn Hafnarsund til að fólk í Flatey geti fylgst með, vonandi verður góður tími í Flatey til að skoða eyna eða leika sér á bátunum.
Farið verður frá Flatey kl. 11 á sunnudagsmorgun til Hergilseyjar og þaðan sem leið liggur meðfram Hvallátrum og Skáleyjum að Stað.
Bátseigendur eða áhöfn þarf að sjá um að björgunarvesti og annan öryggisbúnaður sé í bátnum, koma með nesti fyrir helgina og annað sem hún telur sig þurfa ásamt tjaldi því gist verður á tjaldsvæði í Flatey
Í nokkrum bátum verða menn sem rata þá leið sem við förum , mikilvægt er að formenn sem lítið rata fylgi hinum og fari í kjölfarið, ekki til hliðar við þá því hluti af leiðinni er um þröng sund, kannski tvær til þrjár bátsbreiddir.
Kortinn hér fyrir neðan eru af siglingarleiðum helgarinnar, rauða línan er sigling laugardagsins, en græna línan er sigling sunnudags. Við völdum að setja siglingarleiðina á þrjú kort til að sína leiðirnar betur.
Vegna öryggismála er nauðsynlegt að þátttakendur skrái sig í ferðina. Skráning fer fram á á netpósti artser@simnet.is.
Koma þarf fram nafn báts, nafn formanns og fjöldi farþega í bát. Vinsamlegast skráið ykkur tímanlega. Hlökkum til að sjá ykkur.
Námskeiði frestað
25. May, 2010
Ákvörðun hefur verið tekin um að fresta námskeiðinu ,,Viðgerðir og endursmíði gamalla trébáta“ fram í september vegna dræmrar þátttöku.
Þá mun verða lögð meiri áhersla á verklegan þátt.
Viðhald og endursmíði gamalla trébáta
12. May, 2010
Hefst 27. maí á Reykhólum
Námskeiðið um viðhald og endursmíði gamalla trébáta verður haldið á Reykhólum dagana 27. og 28. maí nk. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig íslenskir bátar voru viðaðir og gerð íslenskra báta. Hver eru heiti borða og áhalda sem voru um borð í Vestfirskum bátum, hvaða verkfæri voru (og eru) notuð við smíði og endursmíði bátanna. Talað um báta frá söguöld til Stanleys og farið yfir seglasaum og sjóklæðagerð.
Að loknum erindum verður frumsýndur leiðarvísir/mynd um hvernig smíðaður er breiðfirskur bátur eftir Ásdís Thoroddsen
Tími: 18.00—20.00 fimmtudaginn 27. maí og 9.00—15.30 föstudaginn 28. maí 2010
Kennarar: Ásdís Thoroddsen, Ágúst Ó. Georgsson, Eggert Björnsson. Hafliði Aðalsteinsson, Hjalti Hafþórsson, Jón Sigurpálsson og Þröstur Jóhannesson.
Staður: Hlunnindasafnið á Reykhólum
Fjöldi kennslustunda: 12
Verð: 12.500
Hægt er að skrá sig hér
Við bendum á að félagsmenn stéttarfélaga eiga möguleika á endurgreiðslum úr starfsmenntasjóðum, oft allt að 75%.
Fundur stjórnar Félags áhugamanna um Bátasafn Breiðarfjarðar
5. October, 2009
Hér með boðar stjórn Félags áhugamanna um Bátasafn Breiðarfjarðar til aðalfundar félagsins sunnudaginn 11. október n.k. kl. 14.00 í Konnakoti, 2. hæð í húsnæði Barðstrendingafélagsins Hverfisgötu 105 Reykjavík
Fundarefni;
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
3. Önnur mál
Nýir áhugasamnir félagar velkomnir.
f.h. stjórnar Hafliði Aðalsteinsson.
Fyrirhugað námskeið í viðgerðum og endursmíði gamalla trébáta
5. October, 2009
Eitt helsta verkefni Bátasafns Breiðarfjarðar er að geyma gamla báta og hafa þá til sýnis, koma á tengslum við skóla og æskulýðsstarf vítt og breitt um landið í formi fræðslu og námskeiðahalds í bátasmíði.
Fyrirhugað er að halda námskeið í byrjun maí á næsta ári í viðgerð og endursmíði gamalla trébáta. Á námskeiðinu verður farið yfir sögu og þróun trébátasmíða á Íslandi.
Fyrstu drög að dagskrá;
1. Bátar frá söguöld til Stanleys (Stanley er fyrsti vélbátur Íslendinga). Fyrirlesari Hjalti Hafþórsson
2. Hvernig voru íslenskir bátar viðaðir.
3. Gerð íslenskra báta. Fyrirlesari Jón Sigurpálsson
4. Heiti borða og áhalda sem voru um borð í íslenskum árabátum. Hvaða verkfæri voru og eru notuð við endursmíði bátanna. Fyrirlesarar Þröstur Jóhannesson og Hafliði Aðalsteinsson.
5. Seglasaumur. Fyrirlesarar Jón Guðbjartsson og Eggert Björnsson.
6. Heimsókn á viðgerðarstað báta. Öll áhöld á staðnum.
7. Frumsýnt kennslumyndband um hvernig smíðaður er breiðfirskur bátur sem áhugamannafélag um stofnun Bátasafns Breiðarfjarðar lét gera.
Námskeiðið verður auglýst á vefnum og víðar þegar nær dregur.
Skinnklæðin vekja athygli.
4. September, 2009
Áhugamannahópur sem stendur að stofnun bátasafns Breiðarfjarðar hefur ekki eingöngu með handverk bátasmíða fyrri tíma að gera heldur lagt sig við að læra seglagerð, eldsmíði og sjóklæðagerð. Mikil vinna hefur verið lögð í að afla heimilda um það handbragð sem tilheyrði gerð þessarra hluta.
Þau hafa vakið mikla athygli skinnklæðin góðu sem Eggert Björnsson félagi okkar frá Patreksfirði saumaði. Um er að ræða eftirlíkingu af fyrstu gerð skinnklæða sem notuð voru sem sjófatnaður. Skinnklæðin hafa alltaf átt hug Eggerts frá því að hann var ungur og teiknaði hann þau gjarnan. Það tók hann um 3 ár af heimildavinnu áður en saumaskapurinn gat hafist og fóru 12 lambsskinn í klæðin.
Skinnklæðin hafa verið fengin að láni á nokkrar sýningar í sumar þ.m.t. á sýningu hjá Alliance Française í Reykjavík um síðustu mánaðarmót. Hún er um veru franskra sjómanna við Íslandsstrendur á skútuöldinni og sýn Íslendinga á þessum framandi mönnum. Myndirnar með fréttinni eru teknar þaðan. Um 70 gestir mættu á opnun sýningunar þar á meðal Vigdís Finnbogadóttir og þóttu skinnklæðin afar áhugaverð. Það var María Óskarsdóttir Patreksfirði sem fékk klæðin lánuð á sýninguna og að hennar sögn sló þögn á hópinn þegar Páll Óskarsson gekk inn í salinn í klæðunum, fólkið vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, svo mikil var undrun þess. Það vissi ekki hvernig það átti að bregðast við. Allt í einu var kominn þarna sjómaður frá liðinni öld, á meðal þeirra; í sjóskóm og með tvíþumla ullarvettlinga á höndunum. Sjóhatturinn á sínum stað
og í hendinni bar hann gamlan fiskigogg. Þegar hópurinn fór aðeins að jafna sig vildu margir, sérstaklega þó konurnar, fá að koma við búninginn. Voru þau skoðuð í bak og fyrir af virtum gestum sem höfðu sumir talsvert vit á saumaskap. Þar á meðal var Adda Geirsdóttir fyrrverandi skólastjórafrú Héraðsskólans á Laugarvatni. Hún er lærð húsmæðra- og handavinnukennari og hefur þaulæft auga fyrir vönduðu handbragði. Hún fékk að skoða búninginn nákvæmlega, ekki aðeins á réttunni, heldur rönguna líka. Því eins og þeir vita sem vandvirkir eru og kunnugir saumaskap, þá er ekki nóg að allt sýnist slétt og fellt að utan. Bakhliðin eða rangan þarf að standast prófið líka! Hún dáðist mjög af handverkinu og því hversu vel búningurinn var unninn.
Fleiri aðilar hafa sýnt klæðunum áhuga og má nefna Ósvör sjóminjasafnið í Bolungarvík, líklega með það í huga að sauma einn slíkann. Þeir höfðu samband við Eggert á dögunum og fengu helstu upplýsingar um sjóklæðagerðina. Við óskum þeim góðs gengis með saumaskapinn.




