Top

Fyrirhugað námskeið í viðgerðum og endursmíði gamalla trébáta

5 October, 2009

Eitt helsta verkefni Bátasafns Breiðarfjarðar er að geyma gamla báta og hafa þá til sýnis, koma á tengslum við skóla og æskulýðsstarf vítt og breitt um landið í formi fræðslu og námskeiðahalds í bátasmíði.

Fyrirhugað er að halda námskeið í byrjun maí á næsta ári í viðgerð og endursmíði gamalla trébáta.  Á námskeiðinu verður farið yfir sögu og þróun trébátasmíða á Íslandi. 

 

 

Fyrstu drög að dagskrá;

1. Bátar frá söguöld til Stanleys (Stanley er fyrsti vélbátur Íslendinga). Fyrirlesari Hjalti Hafþórsson

2. Hvernig voru íslenskir bátar viðaðir.

3. Gerð íslenskra báta.  Fyrirlesari Jón Sigurpálsson

4. Heiti borða og áhalda sem voru um borð í íslenskum árabátum.  Hvaða verkfæri voru og eru notuð við endursmíði bátanna.  Fyrirlesarar Þröstur Jóhannesson og Hafliði Aðalsteinsson.

5. Seglasaumur.  Fyrirlesarar Jón Guðbjartsson og Eggert Björnsson.

6. Heimsókn á viðgerðarstað báta.  Öll áhöld á staðnum.

7. Frumsýnt kennslumyndband um hvernig smíðaður er breiðfirskur bátur sem áhugamannafélag um stofnun Bátasafns Breiðarfjarðar lét gera.

Námskeiðið verður auglýst á vefnum og víðar þegar nær dregur.

 

Bottom